Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var hetja Hearts í gær þegar hann skoraði eina mark leiksins gegn Hibernian í Edinborgar-slagnum í skosku úrvalsdeildinni.
Hann skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma, eftir að hafa komið inn af bekknum.
Markinu fagnaði hann með því að þykjast vagga barni en hann og kærasta hans, Selma Helgadóttir, eiga von á sínu fyrsta barni. Selma er komin framyfir settan dag sem var á föstudag.
The Scottish Sun segir að Selma hafi verið meðal áhorfenda á leiknum í gær en þau eiga von á stúlkubarni í heiminn.
„Hann er ungur maður sem er hérna með maka sínum, þetta hefur verið mikil breyting fyrir hann. Hann hefur sýnt mikinn þroska . Þetta er annasamur tími í hans lífi," sagði Derek McInnes, stjóri Hearts.
Hearts hefur átt magnað tímabil en liðið er með sex stiga forystu á Rangers sem á leik til góða, og níu stiga forystu á Celtic sem á tvo leiki til góða.
Tómas Bent er 23 ára og gekk í raðir Hearts í fyrra, eftir að hafa leikið afskaplega vel með Val í Bestu deildinni.

Hearts derby hero Tomas Magnusson explains why it's set to be 'quite the week' as he reveals huge personal updatehttps://t.co/zsfF7iwAUG
— Scottish Sun Sport (@scotsunsport) February 11, 2026
???? The moment that won the Edinburgh Derby...
— Heart of Midlothian FC (@JamTarts) February 11, 2026
Tómas ????
???? @loveholidays // #loveholidays pic.twitter.com/Nqla2otz2m
Athugasemdir