Það er einn keppnisleikur hér á Íslandi í kvöld. Sá leikur er á Seltjarnarnesinu.
Grótta tekur þá á móti ÍA í Lengjubikarnum en leikurinn fer af stað klukkan 19:00.
Grótta tekur þá á móti ÍA í Lengjubikarnum en leikurinn fer af stað klukkan 19:00.
Gróttumenn eru nýliðar í Lengjudeildinni á meðan ÍA er í Bestu deildinni og ætlar sér þar stóra hluti næsta sumar. Skagamenn hafa styrkt liðið sitt mikið að undanförnu. Gísli Eyjólfsson, Guðmundur Þórarinsson og Böðvar Böðvarsson hafa allir gengið í raðir Skagamanna.
Það er spurning hvort Böðvar, Gísli og Guðmundur verði allir í liði ÍA í kvöld eins og í síðasta leik gegn Þór. ÍA er enn að bíða eftir sínu fyrsta sigri í Lengjubikarnum en þeir töpuðu gegn Aftureldingu og gerðu jafntefli við Þór. Grótta hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.
miðvikudagur 11. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
19:00 Grótta-ÍA (Vivaldivöllurinn)
Athugasemdir



