Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið fyrir komandi verkefni í Mexíkó. Íslenska liðið spilar vináttuleik ytra aðfaranótt 26. febrúar.
Aron Elís Þrándarson dró sig í gær úr hópnum vegna meiðsla og er Jóhann Berg kallaður inn í hans stað. Þetta er önnur breytingin á hópnum frá því að hann var tilkynntur því á fyrsta degi dró Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sig úr hópnum og Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, var kallaður inn í hans stað.
Jóhann Berg er 35 ára miðju/kantmaður sem var á mála hjá Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þar til í upphafi vikunnar en hann fékk samningi sínum rift við félagið og er nú án félags.

Jóhann Berg á að baki 100 landsleiki og hefur í þeim skorað átta mörk.
Athugasemdir