Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þessi lið hafa unnið fimm leiki í röð síðan Man Utd gerði það síðast
United gat unnið sinn fimmta leik í röð í gær en jafntefli var niðurstaðan gegn West Ham.
United gat unnið sinn fimmta leik í röð í gær en jafntefli var niðurstaðan gegn West Ham.
Mynd: EPA
Frank Illett.
Frank Illett.
Mynd: Frank Illett
Það hefur verið mikið fjallað um hinn hárprúða Frank Illett á síðustu dögum og mánuðum. Ilett, þekktur sem The United Strand, hefur hlotið heimsfrægð á samfélagsmiðlum eftir að hann gaf það út að hann myndi ekki klippa hár sitt nema ef Manchester United myndi vinna fimm leiki í röð.

Ilett streymdi frá því þegar hann horfði á 1-1 jafnteflisleikinn gegn West Ham í gær en Man Utd hafði unnið fjóra leiki í röð þegar kom að leiknum. Ilett var sár og svekktur í leikslok enda beðið í um 500 daga eftir því að losna við hárið.

Man Utd hefur ekki unnið fimm leiki í röð í meira en tvö ár núna en þau hjá One Football tóku saman hvaða lið í ensku úrvalsdeildinni hafa unnið fimm leiki í röð síðan United gerði það síðast. Þau eru ellefu talsins.

Listinn í tímaröð:
Chelsea - janúar 2026
Aston Villa - desember 2025
Man City - desember 2025
Arsenal - nóvember 2025
Liverpool - september 2025
Newcastle - apríl 2025
Wolves - apríl 2025
Crystal Palace - mars 2025
Brighton - mars 2025
Nottingham Forest - janúar 2025
Tottenham - október 2024
Athugasemdir
banner
banner