Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   lau 11. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hakimi ekki gjaldgengur vegna ákæru
Achraf Hakimi kemur ekki til greina í vali um besta Afríkumanninn í frönsku deildinni
Achraf Hakimi kemur ekki til greina í vali um besta Afríkumanninn í frönsku deildinni
Mynd: EPA
Marokkóski bakvörðurinn Achraf Hakimi á ekki möguleika á að vinna verðlaunin sem besti afríski leikmaður frönsku deildarinnar vegna nauðgunarákæru á hendur honum en þetta fullyrðir franski miðillinn L'Equipe.

Hakimi er einn besti hægri bakvörður heims og átti veigamikinn þátt í því að Paris Saint-Germain vann þrennuna á síðustu leiktíð.

PSG varð Evrópumeistari í fyrsta sinn og hefur hann verið einn besti Afríkumaðurinn í frönsku deildinni um árabil.

L'Equipe segir hins vegar að hann komi ekki til greina til að vinna Marc Vivien Foe-verðlaunin í ár. Þau voru sett á laggirnar til heiðurs Foe sem lést í landsleik Frakklands og Kamerún árið 2003 og er það besti Afríkumaðurinn í deildinni sem hlýtur þau verðlaun.

Hann var talinn lang líklegastur til að vinna þau, það er að segja fyrir frammistöðu hans á vellinum, en hann hefur verið útilokaður vegna nauðgunarákæru.

Hakimi var kærður fyrir meinta nauðgun á ungri konu árið 2023 og hófust réttarhöldin í febrúar. Hann hefur haldið fram sakleysi sínu í málinu.

Pierre-Emerick Aubameyang, Lamine Camara og Bamba Dieng eru allir tilnefndir og einnig Guéla Doué, leikmaður Strasbourg og Fílabeinsstrandarinnar, en hann er eldri bróðir Desiré Doué, sem er leikmaður PSG og franska landsliðsins.

Þeir sem eru tilnefndir:
Pierre-Emerick Aubameyang (Gabon, Marseille),
Lamine Camara (Senegal, Monaco),
Bamba Dieng (Senegal, Lorient),
Guéla Doué (Fílabeinsströndin, Strasbourg),
Martial Godo (Fílabeinsströndin, Strasbourg),
Ilan Kebbal (Alsír, Paris FC),
Hervé Koffi (Búrkína Fasó, Angers),
Arsène Kouassi (Búrkína Fasó, Lorient),
Aïssa Mandi (Alsír, Lille),
Moussa Niakhaté (Senegal, Lyon),
Mamadou Sangaré (Malí, Lens)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner