Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mið 29. apríl 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kimmich kallar eftir reglubreytingu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Joshua Kimmich varafyrirliði FC Bayern kallaði eftir reglubreytingu í kjölfar 5-4 taps gegn Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Kimmich er líkt og margir Bæjarar og fótboltaunnendur afar ósáttur með dómaraákvörðun sem var tekin seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Fyrirgjöf frá Ousmane Dembélé fór af líkama Alphonso Davies og þaðan í höndina á honum og ákvað Sandro Schärer dómari að dæma vítaspyrnu eftir að hafa verið sendur í skjáinn af kollegum sínum í VAR-herberginu.

   28.04.2026 20:27
Sjáðu atvikin: Umdeildir vítaspyrnudómar


„Þetta var óheppileg ákvörðun sem eyðileggur anda leiksins," sagði Kimmich í viðtali að leikslokum.

Þýski dómarasérfræðingurinn Lutz Wagner skoðaði atvikið og var sammála dómarateyminu. Davies byrjaði með hendur fyrir aftan bak en færði þær þegar fyrirgjöfin lagði af stað. Með því gerði hann líkama sinn breiðari og þess vegna telur Wagner rétt að dæma vítaspyrnu. Kimmich er þó alls ekki sammála.

„Það er enginn andstæðingur fyrir aftan sem getur skorað. Það mætti breyta þessari reglu."

Vincent Kompany þjálfari og Max Eberl yfirmaður íþróttamála voru einnig óhressir með dómaraákvörðunina í viðtölum að leikslokum en neituðu að eyða mikilli orku í að gagnrýna dómarann.

Fyrrum fótboltamennirnir Christoph Kramer og Mats Hummels voru í settinu hjá Amazon Prime sem sýndi leikinn í Þýskalandi. Þeir gagnrýndu ákvörðunina í útsendingunni.

„Þetta var klikkaður leikur og þið sáuð öll hvernig við brugðumst við eftir að hafa lent 5-2 undir. Við stóðum þarna og hugsuðum með okkur: hvað í fjandanum er í gangi? Við vorum ekki þremur mörkum verri en þeir í þessum leik. Það var mikilvægt að halda haus," hélt Kimmich áfram.

„Við vissum að þetta yrði fjörugur leikur en við bjuggumst aldrei við að hann yrði svona opinn. Það er skrýtið að tapa þessum leik með bara einu marki eftir að við vorum þremur undir. Við sýndum mikinn karakter og reyndum að ná inn jöfnunarmarki. PSG voru augljóslega þreyttir undir lokin."

Bayern tekur á móti PSG í seinni undanúrslitaleik liðanna næsta þriðjudagskvöld á Allianz Arena. Sigurvegarinn mætir annað hvort Atlético Madrid eða Arsenal í úrslitaleiknum.
Slapp
banner
banner