Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telja sig hafa gert nóg til að halda Bruno Fernandes
Casemiro er á förum en verður Bruno áfram?
Casemiro er á förum en verður Bruno áfram?
Mynd: EPA
Stjórnendur Manchester United telja að liðið hafi gert nóg til að halda Bruno Fernandes hjá félaginu.

Manchester United er svo gott sem komið aftur í Meistaradeildina en liðið er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar þessa stundina.

Fernandes er samningsbundinn United til ársins 2027, með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. Hann hefur verið stórkostlegur á tímabilinu og gerir stór tilkall í að vera leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni.

Fernandes hefur gert það ljóst að hann vilji að United geti mætt sínum eigin metnaði þegar kemur að því að vinna stóra titla. En þar sem United er á leiðinni aftur á stærsta sviðið í evrópskum fótbolta, þá verður félagið í sterkari stöðu til að laða að helstu skotmörk sín á félagaskiptamarkaðnum til Old Trafford og þannig um leið líklegra til að halda Fernandes.

Einn mögulegur þröskuldur snýr þó að stjórastöðunni. Michael Carrick hefur gert góða hluti síðan hann tók við liðinu til bráðabirgða. United er þó að skoða alla möguleika áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Fernandes er náinn Carrick og vill að félagið ráði hann í starfið til frambúðar.
Slapp
banner
banner
banner