Unai Emery þjálfari Aston Villa var mjög líflegur í viðtali eftir 1-0 tap á útivelli gegn Nottingham Forest í kvöld.
Liðin mættust í fyrri leiknum í undanúrslitum Evrópudeildarinnar og ræddi Emery um stórt atvik sem átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Elliot Anderson, miðjumaður Forest og enska landsliðsins, var heppinn að vera ekki rekinn af velli með beint rautt spjald.
Anderson fór í tæklingu á miðjum velli og náði boltanum en fór svo stórhættulega með útteygða löpp í ökklann á Ollie Watkins sem lá eftir í grasinu. Joao Pinheiro, portúgalski dómari leiksins, dæmdi ekki brot. Atvikið var skoðað í VAR-herberginu en teymið ákvað að skerast ekki inn í.
„Mér fannst dómarinn stórkostlegur í þessum leik, gjörsamlega frábær. Ég elska hvernig hann stýrði leiknum, hann fær 10 af 10 í einkunn frá mér," sagði Emery að leikslokum en snéri sér svo að VAR-teyminu.
„VAR stóð sig mjög, mjög illa. Það er augljóst rautt spjald í þessari tæklingu og ég get ekki skilið hvernig þeir senda dómarann ekki í skjáinn. Þetta eru risastór mistök og VAR ber ábyrgðina. Þetta er mjög augljóst rautt spjald.
„Ég er búinn að horfa á þetta aftur og vá, hann hefði getað brotið ökklann á honum. VAR hvar ertu? Þetta er á þinni ábyrgð, við erum atvinnumenn. Þetta var svo augljóst fyrir alla sem voru að horfa, hann hefði getað ökklabrotnað. Þetta er ekki sanngjarnt."
Emery var annars ánægður með frammistöðu sinna manna þrátt fyrir tapið og var einnig spurður út í afar klaufalegan varnarleik Lucas Digne sem fékk dæmda vítaspyrnu á sig fyrir hendi.
„Þetta var fínn leikur hjá okkur, við fylgdum okkar leikplani eftir en gátum bara ekki skorað. Við stjórnuðum leiknum á löngum köflum og gerðum mjög vel í að leysa úr hápressunni þeirra. Við vörðumst líka vel en þessi vítaspyrna réði úrslitum. Ég er ekki búinn að horfa á endursýningu af atvikinu eða ræða við hann (Lucas Digne) en við munum fara yfir þetta allt á morgun. Fyrst þarf að greina leikinn og svo getum við rætt um hann.
„Þetta einvígi er ekki búið. Við þurfum sigur í næstu viku."
30.04.2026 20:56
Evrópudeildin: Forest með forystuna - Dramatík í Portúgal
Elliot Anderson tackle vs Ollie Watkins (no foul or card)
by
u/977x in
soccer



