35. umferð enska úrvalsdeildartímabilsins hefst í kvöld þegar Leeds United fær fallið lið Burnley í heimsókn. Leeds er sex stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir og getur bætt stöðu sína umtalsvert með sigri.
Evrópubaráttan er ótrúlega jöfn þar sem sjö lið eru að berjast um tvö sæti. Aðeins fjögur stig skilja að á milli liðanna í harðri baráttu.
Brighton er í bestu stöðunni sem stendur en lærlingar Fabian Hürzeler heimsækja Newcastle United í erfiðum slag. Brentford er með í baráttunni en spilar heimaleik við fallbaráttulið West Ham sem hefur verið að gera góða hluti að undanförnu og nýliðar Sunderland eiga einnig möguleika ef þeim tekst að leggja botnlið Wolves að velli.
Topplið Arsenal fær Fulham í heimsókn í lokaleik dagsins og þarf á sigri að halda í titilbaráttunni. Óljóst er hvort Mikel Arteta ætli að gera mikið af breytingum á byrjunarliðinu á milli leikja en leikmenn Arsenal virðast vera orðnir andlega og líkamlega þreyttir eftir langt og erfitt tímabil.
Arsenal mætir Fulham í Lundúnaslag og munu gestirnir ekki gefa neitt eftir þar sem þeir þátttakendur í baráttunni um Evrópusæti.
Bournemouth og Crystal Palace eiga bæði möguleika á Evrópusæti og eigast við í innbyrðisviðureign á sunnudaginn áður en Manchester United tekur á móti Liverpool í klassískum slag. Liðin eru svo gott sem búin að tryggja sér meistaradeildarsæti.
Aston Villa spilar að lokum við Tottenham sem situr afar óvænt í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Að lokum eru tveir mikilvægir og spennandi leikir á dagskrá mánudagskvöldið. Chelsea, sem er búið að tapa fimm úrvalsdeildarleikjum í röð, tekur á móti fallbaráttuliði Nottingham Forest áður en Everton spilar við Manchester City.
Everton á enn möguleika á Evrópusæti á meðan Man City þarf sigur í titilbaráttunni.
Til gamans má geta að af 20 félagsliðum úrvalsdeildarinnar eru 13 enn í baráttu um hin ýmsu sæti, tvö eru fallin og fimm sigla lygnan sjó.
Föstudagur
19:00 Leeds - Burnley
Laugardagur
14:00 Wolves - Sunderland
14:00 Newcastle - Brighton
14:00 Brentford - West Ham
16:30 Arsenal - Fulham
Sunnudagur
13:00 Bournemouth - Crystal Palace
14:30 Man Utd - Liverpool
18:00 Aston Villa - Tottenham
Mánudagur
14:00 Chelsea - Nott. Forest
19:00 Everton - Man City
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 34 | 13 | 9 | 12 | 49 | 46 | +3 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |





