Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 14:59
Elvar Geir Magnússon
Kýldi mótherja í andlitið og fær þrettán leikja bann
Mynd: EPA
Esteban Andrada, markvörður spænska liðsins Real Zaragoza, hefur verið dæmdur í þrettán leikja bann fyrir að kýla mótherja í andlitið,

Andrada hafði þegar fengið rautt spjald þegar hann missti alla stjórn á sér í leik gegn Huesca í spænsku B-deildinni.

Argentínumaðurinn hljóp að Jorge Pulido, fyrirliða Huesca, og kýldi hann í andlitið.

„Í sannleika sagt er ég miður mín vegna þess sem gerðist. Ég bið innilegrar afsökunar. Ég hef bara einu sinni áður á ferlinum fengið rautt spjald og það var fyrir að handleika boltann utan teigs," segir hinn 35 ára Andrada.

Sjáðu atvikið:

Slapp
banner
banner