Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Dermot Gallagher er í vinnu hjá Sky Sports við að gefa sitt álit á stórum og umdeildum dómaraákvörðunum.
Hann var spurður álits eftir 1-1 jafntefli Atlético Madrid gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi þar sem Danny Makkelie dómari dæmdi þrjár vítaspyrnur en hætti við þá síðustu.
Allir vítaspyrnudómarnir eru umdeildir en þriðji dómurinn er sá umdeildasti þar sem fótboltasérfræðingar skilja ekki hvers vegna Makkelie var látinn snúa ákvörðun sinni við.
Makkelie dæmdi vítaspyrnu þegar David Hancko virtist brjóta nokkuð augljóslega á Eberechi Eze innan vítateigs en var sendur í skjáinn af kollegum sínum í VAR-herberginu eftir að hafa átt nokkuð langar samræður. Hann snéri að lokum ákvörðun sinni við eftir að hafa horft á endursýningar í dágóðan tíma en þó aðeins úr tveimur sjónarhornum.
„Ef þið skoðið eitt af sjónarhornunum þá virðist augljóslega verið brotið á Eze. Hitt sjónarhornið er ekki nægilega gott til að sjá almennilega hvað gerist. Ég skil ekki af hverju þeir voru að horfa á ófullnægjandi sjónarhorn þegar ákvörðunin var tekin," segir Gallagher.
„Dómarinn dæmir vítaspyrnu úti á vellinum og að mínu mati þá horfir VAR-teymið alltof mikið inn í þetta. Það er álitamál hvort þetta sé nægilega mikil snerting til að dæma vítaspyrnu, en eftir að dómarinn flautar þá á ekki að snúa þeirri ákvörðun við. Þetta eru ekki skýr og augljós mistök."
30.04.2026 18:53
Tilkynning frá UEFA: Þetta var ekki brot



