Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 10:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Hörður Ingi: Var ekki sáttur við viðskilnaðinn við FH
Kominn í gang eftir að hafa náð sér af þrálátum meiðslum. Hörður hefur spilað með FH, ÍA, Sogndal og Val á sínum ferli. Auk þess á hann leiki á láni hjá Víkingi Ólafsvík og HK.
Kominn í gang eftir að hafa náð sér af þrálátum meiðslum. Hörður hefur spilað með FH, ÍA, Sogndal og Val á sínum ferli. Auk þess á hann leiki á láni hjá Víkingi Ólafsvík og HK.
Mynd: Toggipop
Hefur leikið allar mínúturnar til þessa í deildinni.
Hefur leikið allar mínúturnar til þessa í deildinni.
Mynd: Toggipop
Brosir eftir markið gegn FH.
Brosir eftir markið gegn FH.
Mynd: Toggipop
Boltinn á leiðinni í netið.
Boltinn á leiðinni í netið.
Mynd: Toggipop
Markinu fagnað.
Markinu fagnað.
Mynd: Toggipop
KR vann Val 4-2 í bikarnum. Liðin mætast aftur á laugardagskvöld.
KR vann Val 4-2 í bikarnum. Liðin mætast aftur á laugardagskvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Ingi Gunnarsson (1998) hefur verið í byrjunarliði Vals í fyrstu fjórum leikjunum í Bestu deildinni og er búinn að jafna þann leikjafjölda sem hann náði með liðinu á síðasta tímabili, en meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá honum síðustu misseri

Varnarmaðurinn ræddi við Fótbolta.net um tímabilið til þessa.

Loksins fannst hvað væri að
„Þetta er bara geggjað, alltaf gaman að fá að spila, búið að vera svolítið langt síðan síðast. Í fyrra missti ég nánast af öllu tímabilinu út af þrálátum meiðslum, það er bara geggjað að vera byrjaður aftur," segir Hörður.

„Það tók sinn tíma að fá almennilega greiningu á þessu. Svo fannst hvað væri að hrjá mig og þá var það bara einföld skurðaðgerð, sett net og þá var allt klappað og klárt. Þannig það er ekkert að hrjá mig í dag."

„Þetta er kallað kviðslits-net. Það getur verið flókið að greina kviðslitsmeiðsli, misjafnt hversu sýnileg þau eru."


Hvernig reynir þetta á hausinn?

„Þetta er alveg þungt, sérstaklega þegar maður sér að það gekk svona vel hjá þeim í fyrra. En auðvitað var maður að peppa og samgleðjast þeim á sama tíma. Þetta er þungt fyrir hausinn, en maður verður að vera sterkur, horfa til lengri tíma og sjá fyrir sér þegar maður kemur til baka."

Það er um ár frá því að Hörður var orðaður í burtu frá Val.

„Ég var ekki mikið inni í myndinni þá, var búinn að böðlast með meiðsli og ekki búinn að fá mikið af sénsum á undirbúningstímabilinu. Í vetur finnst ég hafa nýtt sénsana mína vel og sýnt að ég eigi ennþá hellings erindi til að spila fyrir þetta lið. Ég æfði vel í vetur og gerði það sem mér finnst ég gera vel. Vonandi hafa þjálfararnir séð það, ég er allavega að fá að spila."

Ekki hægt að kvarta yfir níu stigum
Eru Valsarar á heildina litið sáttir við frammistöðuna í leikjunum fjórum?

„Ég held það sé ekki hægt að kvarta yfir níu stigum úr fyrstu fjórum leikjunum. Fyrstu umferðirnar eru yfirleitt erfiðar og það getur margt gert í þeim ef liðin mæta peppuð til leiks. Auðvitað vildum við hafa tólf stig, en ég held að við tökum því að vera með níu stig eftir fjórum leikjum, það telst nokkuð gott."

Skorar ekki oft og vildi fagna
Hörður skoraði gegn FH og fagnaði, umræða hefur verið um þá sem ekki hafa fagnað gegn sínum fyrrum félögum, en Hörður er uppalinn FH-ingur og yfirgaf félagið í þriðja sinn sumarið 2024 þegar hann fór í leikmannaskiptum til Vals. Hvernig var tilfinningin að skora og var einhver spurning um að fagna ekki?

Hörður hló áður en hann svaraði spurningunni.

„Mér fannst ekki staðið frábærlega að viðskilnaðinum við FH. Auðvitað var ég ekkert að fagna af hjarta, lífi og sál, en ég skora ekki oft. Mér fannst því ekkert að því að fagna allavega aðeins."

Ætla svara fyrir bikarleikinn
Valur á næst leik gegn KR á laugardagskvöld klukkan 19:15, nágrannaslagur á Hlíðarenda.

„Þetta eru 100% leikirnir sem þú vilt spila, yfirleitt alltaf skemmtilegar rimmur á milli þessara félaga. Ég held að þetta verði skemmtilegur leikur, tveir ólíkir leikstílar, en bæði lið koma á völlinn til þess að vinn. Við ætlum klárlega að mæta til leiks og svara fyrir bikarleikinn á móti þeim."

„Ég sem varnarmaður ætla vona að það verði ekki sama markaveislan og hefur verið í leikjum í KR. Ég held að við munum koma til með að leggjast vel yfir þá og greina það sem þeir hafa gert vel í fyrstu leikjunum - sem er að skora mörk. Við ætlum að reyna verjast þeim og reyna skora fleiri mörk en þeir, ætlum okkur stigin þrjú."


Eins og Hörður kemur inn á lagði KR grannana að velli í Mjólkurbikarnum í upphafi mánaðar.

Spilar þar sem honum er stillt upp
Þú hefur bæði spilað hægri og vinstri bakvörðinn í gegnum ferilinn. Finnur þú þig betur í annarri hvorri stöðunni í dag?

„Nei, þetta er orðið svo sjálfvirkt að það skiptir mig í raun engu máli. Ef ég fæ að spila þá er ég sáttur. Ég leysti miðvörðinn líka í vetur, maður spilar bara þar sem maður fær að spila."

Þjálfararnir eins og Yin og Yang
Hörður var spurður út í áherslubreytingar frá því að Hermann Hreiðarsson tók við af Srdjan Tufegdzic síðasta haust.

„Jú jú, auðvitað eru einhverjar áherslubreytingar, en í grunninn er þetta bara fótbolti. Þjálfarteymið sem er núna: Hemmi, Chris, Vignir, Emil, Kieran og allir þessir kallar sem eru í kringum liðið eru allir geggjaðir gæjar og æfingarnar í vetur eru búnar að vera góðar. Stemningin er líka að mínu mati búin að vera mjög góð. Hemmi og Chris eru eins og Yin og Yang, mér finnst þeir góð blanda."

Fólk elskar að tala um eitthvað neikvætt tengt Val
Valur sem félag hefur fengið sinn skerf af gagnrýni að undanförnu. Varðstu var við hana og hefur þú einhverja skoðun gagnrýninni?

„Ég hef kynnst því eftir að ég kom í Val að fólk elskar að tala um okkur, og sérstaklega ef það er eitthvað neikvætt. Við vorum að glíma við mikil meiðsli í vetur, menn voru að jafna sig eftir aðgerðir og síðasta tímabil. Það voru fáir á vellinum og þá voru fengnir aðrir ungir inn til að reyna grípa gæsina og þroskast sem leikmenn - sem er bara geggjað fyrir þá að öðlast þessa reynslu. Ég held að þegar fór að líða að móti, þá fór þetta að skríða saman og núna erum við búnir að spila fjóra deildarleiki, þá er þetta farið að mixast saman. Maður hlustar ekkert á þetta, maður heldur bara áfram og gerir sitt," segir Hörður að lokum.
Slapp
banner
banner
banner