Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Magalhaes átti að fá rautt spjald fyrir ógnandi hegðun sína í garð Erling Braut Haaland í stórleik Arsenal og Manchester City í síðasta mánuði, en þessari niðurstöðu komst sérstök nefnd ensku úrvalsdeildarinnar sem fer yfir atvik í lykilleikjum.
Gabriel og Haaland fóru haus í haus á 82. mínútu leiksins, en uppskáru báðir gult spjald.
Brasilíumaðurinn var þó mun meira ógnandi og setti hausinn fram í átt að Haaland sem nefndin taldi að hafi verðskuldað rauða spjaldið, en nefndin var á sama tíma ósammála því að VAR hefði átt að stíga inn.
John Brooks, VAR-dómari leiksins, var sammála ákvörðun Anthony Taylor um að gefa gult á báða og taldi hegðun Gabriel grófa.
Þrír í nefndinni greiddu atkvæði um að Gabriel hafi átt að sjá rautt, en hinir tveir sögðu hann ekki hafa notað mikinn kraft og bentu á að hann hafi fyrst leitað aftur áður en hann fór með hausinn fram.
Gabriel hefði farið beint í þriggja leikja bann hefði hann séð rauða spjaldið.
Nefndin fór einnig yfir atvik þar sem varnarmaðurinn Abdukodir Khusanov barðist við Kai Havertz, en hún var einróma með það að hann hafi ekki átt að sjá rautt spjald fyrir að henda Havertz niður sem var að sleppa í gegn.
Taylor gaf ekki aukaspyrnu og VAR hafnaði endurskoðun á atvikinu, en samkvæmt teyminu var Havertz ekki með stjórn á boltanum og þá hafi Khusanov farið öxl í öxl við þýska leikmanninn.
Haaland var hetja Man City í leiknum og kom þeim aftur inn í titilbaráttuna. Arsenal er sem stendur á toppnum með 73 stig en Man City í öðru með 70 stig og á leik til góða.



