Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, tók jákvæða punkta úr leiknum þrátt fyrir 2-0 tap gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld.
„Varnarleikurinn var þéttur í fyrri hálfleik og við héldum í raun markinu hreinu þar. Við fengum tvö fín færi og það er bara dýrt gegn svona góðu liði eins og Blikunum að ná ekki að refsa þeim,“ sagði Anton eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Fram
„Það er fullt jákvætt, varnarleikurinn var náttúrulega bara heilt yfir bara mjög góður. Þær skora náttúrulega bara frábært mark. Skallinn er klárlega ekki auðveldur, hún bara slútta þessu fáránlega vel. Svo erum við komnar svolítið út úr varnarstöðunum þegar hún skorar seinna markið.“
„Svo að hafa ekki fengið á sig mark úr föstu leikatriði það er mjög jákvætt frá því í síðasta leik.“
Markvörðurinn Ashley Brown Orkus átti góðan leik í marki Fram
„Hún steig vel upp og fór í þessa bolta sem við vorum að biðja hana um að taka. Hún er stór og mikil þarna aftast og hún á að hirða þessa bolta sem hún gerði svo sannarlega í dag.“
Sara Svanhildur, sem er uppalin hjá Breiðabliki, var lífleg á miðjunni og var nálægt því að skora.
„Það er alltaf gaman að spila við gömlu félagana. Það hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann í fyrri hálfleik. Skotið hennar nánast frá miðju var virkilega gott, bara óheppni að það hafi lekið framhjá.“
Aðspurður um félagsskiptagluggann, sem lokar á miðnætti, taldi Anton ólíklegt að ná inn leikmönnum fyrir gluggalok.
„Það er svona búið að vera að skoða aðeins en ekkert sem er fast. Mér finnst mjög ólíklegt að það takist fyrir lok gluggans.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.






















