Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Líklegt að Onana missi af undanúrslitaleiknum á morgun
Onana hefur spilað 35 leiki á tímabilinu.
Onana hefur spilað 35 leiki á tímabilinu.
Mynd: EPA
Klukkan 19:00 á morgun verður fyrri undanúrslitaleikur Nottingham Forest og Aston Villa í Evrópudeildinni.

Óvissa ríkir um þátttöku Amadou Onana, miðjumanns Aston Villa, en hann er að glíma við hnémeiðsli.

Það verður skoðað á æfingu síðdegis hvort Onana geti tekið þátt en hann var ekki með í 1-0 tapi Villa gegn Fulham á laugardaginn síðasta.

Ef Onana getur ekki spilað þá mun annaðhvort Lamare Bogarde, sem tók stöðu hans gegn Fulham, eða Douglas Luiz, sem var fyrri hluta tímabils á láni hjá Forest, taka stöðu hans.

Ross Barkley er ekki löglegur í Evrópudeildinni og Boubacar Kamara spilar ekki meira á tímabilinu vegna hnémeiðsla.
Slapp
banner
banner