Það fóru tveir leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem fyrrum úrvalsdeildarstjörnurnar Chris Smalling og Georginio Wijnaldum komust á blað.
Smalling skoraði eina mark Al-Fayha í jafnteflisleik gegn Al-Kholood. Fashion Sakala var einnig í byrjunarliðinu en Al-Fayha siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar með 35 stig eftir 30 umferðir.
Georginio Wijnaldum skoraði þá í sigri hjá Al-Ettifaq á útivelli gegn Al-Okhdood sem er svo gott sem fallið úr deildinni.
Álvaro Medrán, fyrrum leikmaður Real Madrid og Valencia, átti stoðsendingu í sigrinum og þá voru fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Moussa Dembélé og Marek Rodák einnig í byrjunarliðinu.
Al-Ettifaq siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar með 45 stig.


