Stuðningsmenn Tottenham Hotspur eru orðlausir yfir nýjum samstarfssamningi félagsins við Peppa Pig í miðri fallbaráttu, en þeir hafa verið óhræddir við að viðra skoðanir sínar á samfélagsmiðlum í dag.
Tottenham er tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Í miðri fallbaráttu fannst félaginu sniðug hugmynd að fara í samstarf með teiknimyndapersónunni Peppa Pig sem hefur notið mikilla vinsælda út um allan heim.
Félagið hefur sett varning í sölu í samstarfi við Peppa Pig eins og tildæmis bleik húfa með Tottenham-merkinu með innblástur frá Peppa Pig.
„Strákar við erum á barmi falls,“ sagði einn stuðningsmaður á X og bætti annar við: 'Við erum við það að falla, en erum þó alla vega með Peppa Pig-varning til að sýna fyrir það'.
Stuðningsmenn annarra liða sáu kómísku hliðina við þetta: 'Ekki hafa áhyggjur af því falla. Þið fáið alla vega að hitta Peppa Pig á leikvanginum í maí'. Annar sagði: 'Hugmyndin um samstarf Peppa Pig og Tottenham.. Ég get ekki einu sinni lesið þetta án þess að skella upp úr'.
Tottenham á fjóra erfiða leiki eftir í deildinni gegn Aston Villa, Leeds, Chelsea og Everton. Það þarf að vinna leikina og treysta á að West Ham eða Nottingham Forest tapi stigum í leiðinni.



