Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 01. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Meistaradeildarbaráttuliðin mætast
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þriðja síðasta umferð tímabilsins í efstu deild þýska boltans fer fram um helgina þar sem öll liðin mæta til leiks á morgun og hinn.

FC Bayern er búið að tryggja sér Þýskalandstitilinn enn eina ferðina en það er hörð barátta í gangi um síðustu tvö meistaradeildarsætin.

Í dag mætast öll fjögur liðin sem eru í baráttu um þátttökurétt í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð. Hoffenheim spilar fyrst við Stuttgart og eru liðin jöfn á stigum í 4.-5. sæti sem stendur.

Bayer Leverkusen tekur svo á móti RB Leipzig sem virðist óstöðvandi þessa dagana. Leverkusen er tveimur stigum eftirá í baráttunni á meðan Leipzig situr í þriðja sæti og getur svo gott sem innsiglað sæti í Meistaradeildinni með sigri.

Meistararnir í Bayern taka á móti botnliði Heidenheim sem er enn á lífi í baráttunni um 16. sætið, þriðja neðsta sæti deildarinnar. Botnliðin tvö falla niður um deild en þriðja neðsta fær umspilsleiki við þriðja sætið úr 2. Bundesliga.

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Köln eru fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar þrjár umferðir eru eftir. Jafntefli gæti nægt til að tryggja áframhaldandi þátttöku í efstu deild.

Borussia Dortmund siglir nokkuð lygnan sjó í öðru sæti deildarinnar og fær Borussia Mönchengladbach í heimsókn. Gladbach er að eiga afleitt tímabil.

Að lokum spilar Freiburg, sem er í harðri baráttu um sæti í Sambandsdeildinni, heimaleik við fallbaráttulið Wolfsburg. Bæði lið þurfa nauðsynlega á sigri að halda.

Laugardagur
13:30 Werder Bremen - Augsburg
13:30 Union Berlin - Köln
13:30 Hoffenheim - Stuttgart
13:30 Frankfurt - Hamburger
13:30 FC Bayern - Heidenheim
16:30 Leverkusen - RB Leipzig

Sunnudagur
13:30 St. Pauli - Mainz
15:30 Gladbach - Dortmund
17:30 Freiburg - Wolfsburg
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 31 26 4 1 113 32 +81 82
2 Dortmund 31 20 7 4 65 31 +34 67
3 RB Leipzig 31 19 5 7 62 38 +24 62
4 Stuttgart 31 17 6 8 63 43 +20 57
5 Hoffenheim 31 17 6 8 61 45 +16 57
6 Leverkusen 31 16 7 8 62 42 +20 55
7 Frankfurt 31 11 10 10 56 58 -2 43
8 Freiburg 31 12 7 12 44 52 -8 43
9 Augsburg 31 10 7 14 39 55 -16 37
10 Mainz 31 8 10 13 39 49 -10 34
11 Gladbach 31 7 11 13 36 50 -14 32
12 Werder 31 8 8 15 36 54 -18 32
13 Union Berlin 31 8 8 15 35 55 -20 32
14 Köln 31 7 10 14 45 53 -8 31
15 Hamburger 31 7 10 14 34 50 -16 31
16 St. Pauli 31 6 8 17 26 53 -27 26
17 Wolfsburg 31 6 7 18 41 66 -25 25
18 Heidenheim 31 5 7 19 35 66 -31 22
Slapp
banner
banner