„Völlurinn er orðinn grænn, það er verið að taka dúkinn af honum núna. Auðvitað verður hann ekkert í „mint condition", en hann er alveg orðinn þokkalegur og þarf svo 2-3 vikur í viðbót til að ná toppstandi. Hann er klárlega leikhæfur og gott betur."
Þetta segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, um Kaplakrikavöll.
Spilað verður á vellinum klukkan 18:00 á sunnudag þegar Fram kemur í heimsókn í 5. umferð Bestu deildarinnar. Það verður fyrsti heimaleikur FH í sumar.
Liðið átti að mæta Val á heimavelli í 3. umferð Bestu deildarinnar en félögin náðu samkomulagi um að víxla heimaleikjum.
„Við höfum æft á hybrid-grasinu, eins og við gerðum mikið í fyrra, við æfðum kannski 1-2 æfingar í viku á aðalvellinum. Leikmenn hafa farið út á aðalvöllinn ennþá í ár, gera það ekkert fyrr en daginn fyrir leik."

FH er búið með fjóra útileiki. Það er væntanlega engin draumastaða?
„Nei, það er ekki gott að vera kominn svona langt inn í mótið og vera ekki búinn að spila heimaleik. Það er ákveðið forskot sem maður hefur á heimavelli. Við hefðum gjarnan vilja spila á móti Val á heimavelli, en það hefði verið vont fyrir alla. Völlurinn var ekki tilbúinn í það, það hefði ekki verið gott fyrir Bestu deildina og ekki verið gott fyrir völlinn upp á sumarið að gera. Ég er alveg sammála því að það er ekki gott fyrir okkur að hafa þurft að spila fyrstu fjóra leikina á útivelli," segir Davíð.
5. umferð Bestu deildarinnar
laugardagur 2. maí
16:00 Þór-KA (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-KR (N1-völlurinn Hlíðarenda)
sunnudagur 3. maí
XX:XX Stjarnan - ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 4 | 4 | 0 | 0 | 18 - 8 | +10 | 12 |
| 2. Víkingur R. | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 - 3 | +7 | 10 |
| 3. Valur | 4 | 3 | 0 | 1 | 10 - 5 | +5 | 9 |
| 4. Breiðablik | 4 | 2 | 2 | 0 | 6 - 1 | +5 | 8 |
| 5. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 6. Stjarnan | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 - 11 | -1 | 6 |
| 7. Þór | 4 | 2 | 0 | 2 | 5 - 10 | -5 | 6 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. ÍA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 9 | -5 | 2 |
| 10. KA | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
| 11. FH | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 11 | -6 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |