Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vonast til að halda stjóranum sem orðaður er við Chelsea
Mynd: EPA
Frank Lampard er stjóri Coventry og stýrði liðinu upp úr ensku Championship-deildinni í vetur. Coventry verður í úrvalsdeildinni á komandi tímabili í fyrsta sinn í 25 ár. Eigandi félagsins, Doug King, vonast til að halda sínum manni í brúnni.

Lampard er orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea eftir að Liam Rosenior var látinn fara á dögunum.

Lampard er goðsögn hjá Chelsea, skoraði 211 mörk fyrir félagið á þrettán tímabilum. Hann stýrði Chelsea fyrst 2019-21 og svo til bráðabirgða árið 2023.

Eftir erfiðleika hjá Everton þá tók Lampard við Coventry í nóvember 2024 og á sínu fyrsta heila tímabili með liðið kom hann því upp um deild.

„Auðvitað vil ég halda honum. Frank veit hvað mér finnst um hann. Hann er mjög fær stjórnandi og hefur þróað liðið okkar þannig að það vann titilinn án þess að vera eitt af liðunum sem fær greiðslur eftir að hafa fallið. Allir vilja það sem þeir vilja og ég mun skoða stöðuna, ég vona að hann verði áfram með okkur í næsta ævintýri í úrvalsdeildinni, því ég held að hann muni njóta þess að vinna í því umhverfi."

„Mér finnst hann hafa unnið frábært starf og ég er viss um að við munum ræða stöðuna þegar við tökum næsta skref,"
segir King.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 45 27 11 7 93 45 +48 92
2 Ipswich Town 45 22 15 8 77 47 +30 81
3 Millwall 45 23 11 11 62 49 +13 80
4 Middlesbrough 45 22 13 10 70 45 +25 79
5 Southampton 45 21 14 10 79 55 +24 77
6 Wrexham 45 19 13 13 67 63 +4 70
7 Hull City 45 20 10 15 68 65 +3 70
8 Derby County 45 20 9 16 66 57 +9 69
9 Norwich 45 19 8 18 62 54 +8 65
10 Birmingham 45 17 12 16 56 55 +1 63
11 Swansea 45 17 10 18 54 58 -4 61
12 Preston NE 45 15 15 15 54 59 -5 60
13 Bristol City 45 16 11 18 57 59 -2 59
14 QPR 45 16 10 19 61 70 -9 58
15 Sheffield Utd 45 17 6 22 64 65 -1 57
16 Watford 45 14 15 16 53 61 -8 57
17 Stoke City 45 15 10 20 51 54 -3 55
18 Portsmouth 45 14 12 19 48 63 -15 54
19 Charlton Athletic 45 13 14 18 43 55 -12 53
20 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
21 West Brom 45 13 14 18 47 56 -9 51
22 Oxford United 45 11 14 20 45 57 -12 47
23 Leicester 45 11 16 18 57 68 -11 43
24 Sheff Wed 45 1 12 32 27 88 -61 -3
Slapp
banner
banner
banner