Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 11:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Iraola á mikla aðdáendur innan Man Utd
Andoni Iraola.
Andoni Iraola.
Mynd: EPA
Andoni Iraola er sagður líklegastur til að taka við Manchester United ef Michael Carrick verður ekki ráðinn.

Telegraph greinir frá því að Iraola eigi mikla aðdáendur innan United eftir það starf sem hann hefur unnið með Bournemouth.

Vaxandi væntingar hafa verið um að Carrick verði ráðinn þegar Meistaradeildarsætið hefur verið tryggt, en United er þó staðfast í því að fara í fullt ráðningarferli og ræða við fleiri þjálfara.

Þrátt fyrir það kæmi á óvart ef Carrick fær starfið ekki til frambúðar, enda hefur hann snúið gengi United við eftir að Ruben Amorim var látinn fara í byrjun janúar.

Iraola hefur ákveðið að yfirgefa Bournemouth í lok tímabilsins eftir að hafa hafnað nokkrum tilboðum um að framlengja samning sinn. Arftaki hans, Marco Rose, hefur þegar verið kynntur til sögunnar en Iraola vonast til að kveðja félagið á góðan hátt.

Iraola hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Crystal Palace.
Slapp
banner
banner
banner