Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Forest án Murillo í Skírisskógi
Leikurinn á morgun kemur of snemma fyrir Murillo.
Leikurinn á morgun kemur of snemma fyrir Murillo.
Mynd: EPA
Klukkan 19:00 á morgun verður fyrri undanúrslitaleikur Nottingham Forest og Aston Villa í Evrópudeildinni.

Brasilíski miðvörðurinn Murillo var ekki með Forest í stórsigrinum gegn Sunderland um síðustu helgi og er ekki klár fyrir leikinn á morgun.

„Hann er að reyna að snúa aftur sem fyrst en er ekki orðinn klár. Kannski verður hann klár eftir nokkra daga. Bíðum og sjáum," segir Vítor Pereira, stjóri Forest.

Annar brasilískur varnarmaður, Jair Cunha, er tæpur fyrir leikinn á morgun og einnig er óvissa með þátttöku Dan Ndoye og Ibrahim Sangare.
Slapp
banner
banner
banner