Árni Snær Ólafsson (1991) hefur fengið gagnrýni í Innkastinu fyrir tilburði sína í marki Stjörnunnar í síðustu tveimur leikjum. Það vakti athygli að Árni skutlaði sér ekki í fyrra markinu sem Elías Már Ómarsson skoraði gegn Stjörnunni í síðustu viku og hann var aftur gagnrýndur eftir leikinn gegn Val á mánudag.
Hann var bæði gagnrýndur fyrir markið sem Lúkas Logi Heimisson skoraði og seinna mark Tryggva Hrafns Haraldssonar.
Hann var bæði gagnrýndur fyrir markið sem Lúkas Logi Heimisson skoraði og seinna mark Tryggva Hrafns Haraldssonar.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
Verra en gegn Víkingi
„Lúkas Logi skorar af svolitlu færi, boltinn fer í nærhornið og Árni reynir ekki við skotið. Hann stóð eins og stytta og endar á hnénu, sem hann gerir stundum," sagði fyrrum markvörðurinn Valur Gunnarsson í Innkastinu.
„Það hefur gerst allan hans feril og gerðist síðast í síðasta leik þegar Elías Már skoraði. Þetta (markið hjá Lúkasi) var eiginlega verra því hann getur ekki falið sig á bakvið neitt. Árni sér boltann allan tímann, Lúkas Logi er á réttum fæti að skjóta með hægri í nærhornið. Árni gerir það sem hann er þekktur fyrir, fer á hnéð og horfir á eftir boltanum skauta í markið," sagði Tómas Þór Þórðarson.
Orðin svolítið mörg dæmi
Umræðan um Árna hélt svo áfram þegar rætt var um þriðja mark Vals.
„Tryggvi rúllar boltanum í átt að Árna sem var lengi niður," sagði Tómas.
„Enn og aftur er Árni ekki að líta nægilega vel út í markinu hjá Stjörnunni, vörnin er hræðileg og þetta er einfalt, en þetta skot er alls ekki gott og léleg afgreiðsla að mörgu leyti. Ég veit ekki hvað Árni ætti að vera að horfa á annað en boltann þarna, en tilburðirnir... Árni var mjög flottur í fyrra og hélt þeim á löngum köflum á lífi, við vitu hvað hann getur gert í spilinu. En við erum að tala núna um svolítið mörg dæmi þar sem maður setur stórt spurningarmerki við hann og hreinlega hvort það sé farinn að koma tími á hann," sagði Valur.
„Þeir voru að semja við hann (í vetur). Þeir voru í haltu mér slepptu mér í vetur, Víkingarnir vildu fá hann sem varamarkmann. Hann tekur ákvörðunina að endursemja og maður hélt að það væri góð ákvörðun fyrir báða aðila (Árna sjálfan og Stjörnuna) því hann var virkilega öflugur í fyrra. En hann er ekki búinn að fara vel af stað. Ég ætla ekki að gefa honum slaka fyrir þessa „hnjátilburði" sína, en þessi varnarleikur er ekki hægt," sagði Tómas Þór.




