Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 09:05
Elvar Geir Magnússon
Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Powerade
Rafael Leao.
Rafael Leao.
Mynd: EPA
Elliot Anderson.
Elliot Anderson.
Mynd: EPA
Manchester United býst við að halda Bruno og hefur áhuga á leikmanni AC Milan, Newcastle með augastað á markvörðum og Arsenal hefur enn áhuga á Julian Alvarez. Hér er slúðurpakkinn.

Manchester United er á barmi þess að innsigla sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næsta tímabil og telur að það muni nægja til að tryggja það að besti maður liðsins, Bruno Fernandes (31), verði áfram. Hann er með 57 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum. (Mirror)

Manchester United gæti snúið sér að portúgalska kantmanninum Rafael Leao (26) hjá AC Milan í sumar. Ítalska félagið er tilbúið að skoða möguleika á að fá Marcus Rashford (28), Manuel Ugarte (25) eða Joshua Zirkzee (24) sem hluta af samkomulagi. (La Gazzetta dello Sport)

Crystal Palace hefur sett saman lista með sex nöfnum stjóra sem gætu tekið við af Oliver Glasner eftir tímabilið. Frank Lampard stjóri Coventry og Kieran McKenna hjá Ipswich eru meðal nafna á lista. (Independent)

Manchester United vill ekki fara í tilboðsstríð um enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest. Manchester City hefur einnig áhuga á leikmanninum. United gæti snúið sér að öðrum skotmörkum, eins og til dæmis kamerúnska landsliðsmanninum Carlos Baleba (22) hjá Brighton. (ESPN)

Newcastle skipuleggur endurnýjun á leikmannahópi í sumar. Franski markvörðurinn Robin Risser (21) hjá Lens og enski markvörðurinn James Trafford (23) hjá Manchester City koma til greina í aðalmarkvarðarstöðuna. (i paper)

Barcelona heldur áfram að vinna í að reyna að fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid en Arsenal og Paris St-Germain binda enn vonir um að geta fengið þennan fyrrum leikmann Manchester City. (Teamtalk)

Leeds United hefur endurnýjað áhuga sinn á japanska varnartengiliðnum Hidemasa Morita (30) hjá Sporting Lissabon. Hann er sjálfur áhugasamur ef liðið heldur sér í úrvalsdeildinni. (Mail)

Marseille gæti þurft að selja enska sóknarmanninn Mason Greenwood (24) af fjárhagslegum ástæðum. Juventus hefur áhuga þrátt fyrir að franska félagið sé með 50 milljóna evra verðmiða á leikmanninum. (La Gazzetta dello Sport)

Benfica er með Marco Silva (48), stjóra Fulham, efstan á óskalistanum ef Jose Mourinho snýr aftur til Real Madrid. (Record)

Everton reynir að fá Bosníumanninn Esmir Bajraktarevic (21) frá PSV Eindhoven. Framherjinn fæddist í Bandaríkjunum. (SportSport)
Slapp
banner
banner