Luis Enrique þjálfari PSG var kátur eftir ótrúlegan fótboltaleik í gærkvöldi þar sem Frakklands- og Evrópumeistararnir unnu 5-4 gegn Þýskalandsmeisturum FC Bayern í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu.
28.04.2026 22:31
Luis Enrique: Besti leikur þjálfaraferilsins
Hann er afar spenntur fyrir seinni leiknum sem fer fram á Allianz Arena í München í næstu viku.
„Í þessum leik áttum við skilið að sigra, gera jafntefli og tapa, þetta var ótrúlegur leikur," sagði Enrique kíminn að leikslokum. „Ég verð að óska öllum leikmönnunum sem tóku þátt í þessum leik til hamingju. Ég hef aldrei áður séð svona mikla ákefð og líkamlega getu í fótboltaleik, hraðinn var ótrúlegur.
„Við munum mæta með sama hugarfar í seinni leikinn. Við ætlum að spila okkar leik, spila sóknarbolta og vinna leikinn. Ég spurði starfsteymið hvað við þyrftum að skora mörg mörk til að komast áfram á Allianz Arena og svarið var að minnsta kosti þrjú."
???????????? Luis Enrique to Vincent Kompany: “You saw the game from the stands! Did you like it?”.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 28, 2026
“No!”. ????@CBSSportsGolazo ???????? pic.twitter.com/1GiPLC5E4V





