Enski miðjumaðurinn Jack Grealish segir að endurhæfingin eftir aðgerðina gæti ekki gengið betur.
Grealish er á láni hjá Everton frá Manchester City en hann meiddist á fæti í leik gegn Aston Villa, hans fyrrum félagi, í janúar og þá var ljóst að tímabilinu væri lokið.
Grealish er á láni hjá Everton frá Manchester City en hann meiddist á fæti í leik gegn Aston Villa, hans fyrrum félagi, í janúar og þá var ljóst að tímabilinu væri lokið.
„Það eru tíu vikur síðan ég fór í aðgerðina og átti viðtal við skurðlækninn þar sem hann sagði að þetta gæti ekki litið betur út á þessu stigi," segir hinn þrítugi Grealish.
Grealish lék 22 leiki fyrir Everton á tímabilinu, skoraði tvö mörk og átti sex stoðsedningar.
Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við City og Everton hefur áhuga á að kaupa hann ef City lækkar 50 milljóna punda verðmiðann sem er á honum.
„Sem fótboltamaður er alltaf erfitt að vera meiddur en ég gæti ekki verið þakklátari Everton fyrir það hvernig félagið hefur komið fram við mig síðan ég meiddist. Það hafa allir verið frábærir; stjórinn, teymið og samherjarnir."


