Mikel Arteta var mjög pirraður eftir 1-1 jafntefli Arsenal gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn fór fram í Madríd í kvöld.
Viktor Gyökeres og Julian Alvarez skoruðu mörkin úr vítaspyrnum en Arsenal menn vildu fá aðra vítaspyrnu þegar Eberechi Eze var felldur í teignum undir lok leiksins.
Viktor Gyökeres og Julian Alvarez skoruðu mörkin úr vítaspyrnum en Arsenal menn vildu fá aðra vítaspyrnu þegar Eberechi Eze var felldur í teignum undir lok leiksins.
„Eftir að hafa farið inn í klefa, talað við strákana og horft á þetta atvik er ég gríðarlega vonsvikinn og pirraður því þetta er brot á lögunum og breytir einvíginu, ég er í uppnámi," sagði Arteta.
„Það er greinileg snerting, hann tekur ákvörðun og getur ekki tekið hana til baka eftir að hafa séð atriðið 13 sinnum, algjörlega óásættanlegt á þessu getustigi."
Hann var hins vegar heilt yfir nokkuð sáttur með leik liðsins.
„Það var margt jákvætt. Við vissum að við myndum eiga erfið augnablik þar sem Atletico hefur staðið sig ótrúlega vel gegn bestu liðum heims. Við vissum að við yrðum að komast í gegnum það en hefðum átt að gera betur. Við erum í frábærri stöðu, þetta er í okkar höndum."



