Óttast var að Mohamed Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool eftir að hann fór meiddur að velli gegn Crystal Palace um helgina.
Liverpool hefur staðfest að um smávægileg vöðvameiðsli er að ræða og búist er við að hann verði klár í slaginn fyrir lok tímabilsins.
Einungis eru fjórir leikir framundan hjá Liverpool áður en Salah kveður í sumar og lokaleikurinn, heimaleikur gegn Brentford, fer fram 24. maí, eftir mánuð.
Salah kveður Liverpool í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Hann gekk til liðs við félagið frá Roma árið 2017 og er goðsögn hjá félaginu. Það er óhætt að segja að hann er einn besti leikmaður í sögu félagsins.
Liverpool FC can confirm Mohamed Salah is expected to be available to play again before the end of this season ??
— Liverpool FC (@LFC) April 29, 2026



