Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 20:12
Ívan Guðjón Baldursson
Brjálaður eftir tapið: Dómgæslan er til skammar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tyrkneski miðvörðurinn Merih Demiral var gríðarlega ósáttur eftir tap Al-Ahli gegn Al-Nassr í toppbaráttu sádi-arabísku deildarinnar í gær.

Al-Ahli tókst nýverið að verja Asíumeistaratitilinn með sigri í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en tapaði svo 2-0 gegn Al-Nassr.

Demiral, sem er 28 ára gamall og lék áður fyrr fyrir Juventus og Atalanta, réði illa við tilfinningarnar að leikslokum og gagnrýndi dómgæsluna.

„Sjáið fótlegginn á mér, ég var næstum fótbrotinn í þessum leik. Dómgæslan hérna er ótrúleg, ég sver til guðs," sagði Demiral er hann gekk af velli eftir tapið.

„Dómararnir eru alltaf að hjálpa Al-Nassr að reyna að vinna titla. Ég sver til guðs að þetta er til skammar. Ég sver til guðs að þeir eru að hjálpa Al-Nassr.

„Þökk sé guði þá tekst okkur í Al-Ahli að vinna án utanaðkomandi hjálpar."


Demiral er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Tyrklands, með 61 landsleik að baki.

Til gamans má geta að Demiral tók verðlaunapeninginn sinn úr Meistaradeildinni með í útileikinn gegn Al-Nassr. Hann sýndi áhorfendum og sagði svo: „þetta er í fyrsta sinn sem þeir sjá verðlaunapening úr Meistaradeildinni á leikvanginum sínum."

Al-Nassr vann B-keppni Meistaradeildarinnar á dögunum, sem samsvarar Evrópudeildinni.


Slapp
banner
banner