Dórothea Ósk Haraldsdóttir er búin að skrifa undir sinn fyrsta samning við Breiðablik en hún er aðeins 16 ára gömul.
Dórothea var partur af liðinu er 2. flokkur Breiðabliks varð Íslands- og bikarmeistari í fyrra og hefur æft og spilað með meistaraflokki á undirbúningstímabilinu.
Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrr á þessu ári og hefur verið í leikmannahópi meistaraflokks í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins í Bestu deildinni.


