Félagaskiptaglugginn í Bestu deild karla og kvenna lokaði á miðnætti í gær. Sjálfur lokadagurinn var frekar rólegur, en þegar glugginn er skoðaður í heild sinni var ýmislegt um að vera.
Nú er því áhugavert að fara yfir það sem gerðist og leggja mat á það. Hver voru bestu "kaupin"? Það er auðvitað ekki allt sem fellur undir kaup - flestir koma á frjálsri sölu - en við leyfum okkur að orða það þannig.
Nú er því áhugavert að fara yfir það sem gerðist og leggja mat á það. Hver voru bestu "kaupin"? Það er auðvitað ekki allt sem fellur undir kaup - flestir koma á frjálsri sölu - en við leyfum okkur að orða það þannig.
Það er lítið liðið af mótinu og því erfitt að leggja endanlegt mat á hvernig leikmenn munu reynast. En ef staðan er tekin í dag eru þetta fimm bestu "kaupin" að mati undirritaðs.
Arnór Ingvi (KR)
Er að snúa heim úr atvinnumennsku eftir langan og farsælan feril, þar sem hann lék einnig stórt hlutverk með íslenska landsliðinu. Það hefur strax sést hvað Arnór Ingvi hefur mikið að færa KR, ekki síst utan vallar þar sem hann er öflugur leiðtogi. Erfitt er að sjá annað en að hann verði ein bestu "kaup" sumarsins þegar upp er staðið. Spurningin er hvort hann geti ýtt KR alla leið í titilbaráttu.
Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Birnir sneri aftur heim úr atvinnumennsku í fyrra þegar hann gerði samning við KA. Það var dýrt fyrir KA en frábær fjárfesting þar sem hann hjálpaði liðinu að halda sér uppi og gott betur en það. Núna er hann mættur í Stjörnuna og getur klárlega verið einn besti leikmaður deildarinnar í sumar. Hrikalega skemmtilegur karakter líka sem mun lita Garðabæinn.
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Eins og Arnór Ingvi er Elías Már að snúa aftur í íslenska boltann eftir langan og farsælan feril erlendis, lengst af í Hollandi við góðan orðstír. Mikið var rætt og ritað um stöðu hans á undirbúningstímabilinu – að hann væri ekki í formi og að Víkingar væru jafnvel tilbúnir að lána hann. Hann hefur hins vegar byrjað mótið frábærlega og allt bendir til þess að þetta verði afar góð skipti fyrir Víkinga. Þegar þetta er skrifað er hann markahæstur í deildinni, ásamt Aroni Sigurðarsyni, með fimm mörk.
Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Hefur kannski ekki byrjað mótið af krafti á Akranesi, en það var stórt fyrir ÍA að landa Gísla. Hann hefur ítrekað sýnt að hann getur verið einn besti leikmaður deildarinnar, ef ekki sá besti á sínum degi. Gísli, sem er uppalinn í Breiðabliki, var samkvæmt Halldóri Árnasyni, fyrrum þjálfara Blika, á leiðinni í Kópavoginn en Skagamenn náðu að sannfæra hann um að koma í ÍA. Þrátt fyrir rólega byrjun er erfitt að sjá annað en að þetta verði afar góð kaup.
Þorlákur Breki Baxter (Keflavík)
Leikmaður sem hefði líklega ekki verið á þessum lista fyrir mót. Breki var flottur á köflum með ÍBV síðasta sumar og Keflavík ákvað að sækja hann frá Stjörnunni. Hann hefur byrjað sumarið mjög vel og var til dæmis magnaður gegn KA í síðasta leik. Aðeins 21 árs og ef hann heldur þessari frammistöðu gæti hann orðið bæði lykilmaður í baráttu Keflavíkur og verðmæt söluvara.




