Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 18:53
Ívan Guðjón Baldursson
Tilkynning frá UEFA: Þetta var ekki brot
Mynd: EPA
Evrópska fótboltasambandið UEFA er búið að gefa frá sér yfirlýsingu eftir háværar kvartanir varðandi dómgæslu hins hollenska Danny Makkelie í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Atlético Madrid tók þar á móti Arsenal og urðu lokatölur 1-1 eftir að Makkelie dæmdi tvær vítaspyrnur. Hann dæmdi einnig þriðju spyrnuna en breytti dómnum eftir að hafa verið sendur í skjáinn af kollegum sínum í VAR-herberginu.

Í þriðja vítaspyrnudóminum var Eberechi Eze, leikmaður Arsenal, augljóslega á undan David Hancko, varnarmanni Atlético, að ná til boltans innan vítateigs. Eze potaði tánni í boltann, fann snertingu frá Hancko og datt til jarðar og Makkelie dæmdi vítaspyrnu.

Eftir langar samræður við VAR-teymið var Makkelie loks sendur í skjáinn og snéri ákvörðun sinni við eftir að hafa horft aftur á atvikið í dágóða stund.

Mikel Arteta þjálfari Arsenal gagnrýndi þessa ákvörðun harðlega að leikslokum og hafa nánast allir fótbolta- og dómarasérfræðingar tekið undir þau orð. UEFA birti stutta yfirlýsingu í dag vegna málsins.

„Leikmaður númer 17 hjá Atlético braut ekki af sér," segir í stuttri yfirlýsingu frá UEFA sem neitaði að tjá sig frekar um málið.

   29.04.2026 21:58
Arteta vonsvikinn og pirraður - „Það er greinileg snerting"

Slapp
banner
banner