Íþróttafréttamaðurinn Andy Dunn hjá Mirror segir að hinn magnaði leikur PSG og Bayern München í gær hafi sýnt hvað vanti í ensku úrvalsdeildina. Í enska boltanum sé nálgunin oft varfærnisleg.
„Það sem þetta meistaraverk í gær sýndi var að það er skortur á því að tekin sé áhætta og menn þori að taka menn á í ensku úrvalsdeildinni," segir Dunn.
„Í París sáum við Díaz, Olise, Khvicha Kvaratskhelia, Desire Doue, Ousmane Dembele og sókndjarfa bakverði beggja liða sem voru allir klárir í að láta vaða."

„Þrátt fyrir öll gæðin í ensku úrvalsdeildinni þá sjáum við þessa nálgun varla í ensku úrvalsdeildinni. Það eru undantekningar, eins og til dæmis Jeremy Doku sem er fullur sjálfstrausts hjá Manchester City."
„En að stærstu leyti eru menn hikandi við að taka leikmenn á, taka áhættu. Að sjálfsögðu þurfa þessir gæðaleikmenn að vera til staðar sem eru nægilega góðir til að framkvæma þetta gegn elítuleikmönnum."
PSG vann 5-4 sigur gegn Bayern München í stórkostlegum undanúrslitaleik í Meistaradeildinni í gær.