Fyrr í dag birtist hér listi á síðunni yfir fimm bestu kaupin í Bestu deild karla núna þegar glugginn er lokaður. Það var skellt í lás á miðnætti í gær og er nú áhugavert að fara yfir það sem gerðist og leggja mat á það. Hver voru bestu "kaupin"? Það er auðvitað ekki allt sem fellur undir kaup - flest gerist í gegnum frjálsa sölu í íslenskum fótbolta - en við leyfum okkur að orða það þannig.
Skoðum núna Bestu deild kvenna. Það er lítið liðið af mótinu og því erfitt að leggja endanlegt mat á hvernig leikmenn munu reynast. En ef staðan er tekin í dag eru þetta fimm bestu "kaupin" að mati undirritaðs.
Skoðum núna Bestu deild kvenna. Það er lítið liðið af mótinu og því erfitt að leggja endanlegt mat á hvernig leikmenn munu reynast. En ef staðan er tekin í dag eru þetta fimm bestu "kaupin" að mati undirritaðs.
Elísa Bríet Björnsdóttir (Þór/KA)
Ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður sem var búin að taka býsna stórt hlutverk í liði Tindastóls þrátt fyrir ungan aldur. Hún og Birgitta Rún Finnbogadóttir fóru báðar frá Stólunum yfir í Þór/KA og var það stórt fyrir Akureyrarfélagið að landa þeim, sem og auðvitað Örnu Sif Ásgrímsdóttur sem er mikill leiðtogi. Þær allar hefðu getað verið á þessum lista. Það er núna ungur kjarni kominn í Þór/KA sem getur leyft Akureyringum að dreyma.
Elísa Viðarsdóttir (Breiðablik)
Það mun taka tíma að venjast því að sjá Elísu í grænu eftir allan tímann hennar í Val, sem hafa verið helstu samkeppnisaðilar Breiðabliks síðustu ár. Elísa virðist vera að smellpassa inn í Blikaliðið og er að finna sig aftur ef svo má segja. Gífurlega mikill leiðtogi sem mun styrkja Blikaliðið innan sem utan vallar.
Ísabella Sara Tryggvadóttir (Valur)
Það hafa orðið miklar breytingar hjá Valskonum síðustu árin og þær eru með mjög ungt lið í sumar. Ísabella Sara hefur alla burði til að vera stjarnan í þessu liði. Hún fór til Rosengård í Svíþjóð í mars 2025 og það er mjög líklegt að hún muni fara aftur í atvinnumennsku, sérstaklega ef hún tekst á við þá ábyrgð sem hún fær í Valsliðinu í sumar. Skoraði frábært mark í fyrstu umferð deildarinnar.
Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)
Eftir að hafa ekki fundið sig á tveimur árum sínum í Val virðist Jasmín Erla vera búin að finna hamingjuna aftur á heimavelli hamingjunnar. Bróðir hennar, Kristall Máni, reyndist Víkingum gríðarlega vel og það verður gaman að sjá hvort Jasmín finni sig eins vel í Víkinni. Hún byrjaði frábærlega í fyrstu umferð þar sem hún skoraði og lagði upp í sigri gegn Stjörnunni. Getur verið einn besti leikmaður deildarinnar í sumar.
Natasha Anasi (Grindavík/Njarðvík)
Síðast en ekki síst er það Natasha sem er algjör hvalreki fyrir hið nýsameinaða lið Grindavíkur/Njarðvíkur. Liðið er bara á sínu öðru ári eftir sameiningu og er komið upp í Bestu deildina. Natasha mun koma með gríðarlega mikið að borðinu, mikla reynslu og mikil gæði. Ef Grindavík/Njarðvík kemur á óvart í sumar, þá mun hún væntanlega spila þar stóra rullu. Finnur líka ekki mikið flottari karaktera en hana.



