Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Bæði mörkin úr vítaspyrnum í Madríd
Viktor Gyökeres
Viktor Gyökeres
Mynd: EPA
Julian Alvarez
Julian Alvarez
Mynd: EPA
Atletico Madrid 1 - 1 Arsenal
0-1 Viktor Gyokeres ('44 , víti)
1-1 Julian Alvarez ('56 , víti)

Atletico Madrid fékk Arsenal í heimsókn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð tíðindalítill en það dró til tíðinda undir lok fyrri hálfleiksins þegar David Hancko braut á Viktor Gyökeres inn á teignum og vítaspyrna dæmd.

Gyökeres tók vítið sjálfur og skoraði og sá til þess að Arsenal var með forystuna í hálfleik.

Heimamenn áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en komu sterkir út í seinni hálfleikinn.

Julian Alvarez var nálægt því að jafna metin þegar hann átti skot beint úr aukaspyrnu en boltinn fór í hliðarnetið. Stuttu síðar varði David Raya boltann út í teiginn og Antoiine Griezmann komst í færi en Gabriel bjargaði á síðustu stundu.

Atletico fékk síðan vítaspyrnu eftir klukkutíma leik þegar Ben White fékk boltann í höndina. Alvarez tók spyrnuna og jafnaði metin. Griezmann var hársbreidd frá því að koma Atletico yfir strax í kjölfarið en hann átti hörkuskot í slánna.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var þriðja vítaspyrnan dæmd þegar Hancko braut á Eberechi Eze. Dómarinn skoðaði atvikið í VAR og taldi að snertingin hafi ekki verið nógu mikil og tók ákvörðunina til baka.

Fleira markvert gerðist ekki og jafntefli var því niðurstaðan. Seinni leikur liðanna fer fram á þriðjudaginn 5. maí á Emirates vellinum í Lundúnum.
Slapp
banner
banner