Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 11:54
Elvar Geir Magnússon
Alvarez í góðu lagi og verður með í seinni leiknum gegn Arsenal
Mynd: EPA
Julian Alvarez, sóknarmaður Atletico Madrid, fór af velli í 1-1 jafnteflinu gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hafa snerið á sér ökklann.

Argentínski blaðamaðurinn Gaston Edul segir að Alvarez sé hinsvegar í fínu lagi og ljóst að hann verður með í seinni leiknum sem verður á Emirates vellinum á þriðjudaginn.

Alvarez skoraði jöfnunarmark Atletico í leiknum í gær af vítapunktinum.

Norski sóknarmaðurinn Alexander Sörloth kom ekki við sögu í leiknum í gær en það var síðan greint frá því að hann hefði orðið fyrir meiðslum í upphitun.

Giuliano Simeone fór af velli í hálfleik í gær en faðir hans, Diego Simeone stjóri Atletico, sagði eftir leik að hann vonaðist til að allir væru búnir að ná sér fyrir seinni leikinn.
Slapp
banner
banner