Everton ætlar sér stóra hluti í sumarglugganum og vill bæta við sig þremur Englendingum. Mohamed Salah gæti þá valið Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Everton ætlar að endurvekja áhuga sinn á enska framherjanum Liam Delap (23), sem er á mála hjá Chelsea, ásamt því að reyna við John Stones (31) sem mun yfirgefa Manchester City eftir tímabilið. Ben White (28) hjá Arsenal er einnig á blaði hjá Everton og þá vill félagið halda Jack Grealish (30) áfram, en hann er á láni frá Man City. (i Paper)
Mohamed Salah (33), leikmaður Liverpool, gæti hafnað tilboðum frá Sádi-Arabíu i sumar og farið í staðinn til Fenerbahce í Tyrklandi. (A Spor)
Chelsea telur sig geta fengið allt að 60 milljónir punda fyrir senegalska framherjann Nicolas Jackson (24), sem er á láni hjá Bayern München. (Athletic)
Man Utd hefur áhuga á El Hadji Malick Diouf (21), leikmanni West Ham og senegalska landsliðsins, en honum er ætlað að veita enska leikmanninum Luke Shaw samkeppni um vinstri bakvarðarstöðuna. (Guardian)
Tottenham mun selja Guglielmo Vicario (29), markvörð liðsins til Inter í sumar og reyna að fá James Trafford (23) frá Man City eða Bart Verbruggen (23) frá Brighton. (Teamtalk)
Juventus hefur áhuga á Alisson (33), markverði Liverpool og brasilíska landsliðsins. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool. (Mail)
Aston Villa er að skoða það að fá Azzedine Ounahi (26), miðjumann Girona og Marokkó. (Sportsboom)
Ónefnt ítalskt félag hefur lagt fram fyrirspurn til Manchester United um enska vængmanninn Jadon Sancho (26), sem verður samningslaus í sumar. (Sky Sports)
Nottingham Forest og Fenerbahce eru að nálgast samkomulag um enska vinstri bakvörðinn Archie Brown (23). (A Spor)



