Real Madrid er að íhuga að bjóða Toni Kroos starf hjá félaginu en hann er af mörgum talinn vera mögulegur framtíðarþjálfari aðalliðsins.
Kroos er 36 ára gamall og er goðsögn hjá Real Madrid eftir tíu frábær ár hjá félaginu. Hann gekk til liðs við Real sumarið 2014 og var mikilvægur hlekkur í liðinu allt þar til hann lagði takkaskóna á hilluna fyrir tveimur árum síðan.
Starf Kroos yrði svipað og fyrsta starf Zinedine Zidane hjá félaginu eftir að atvinnumannaferli hans lauk 2006. Hann yrði titlaður sem ráðgjafi og myndi starfa sem tengiliður á milli búningsklefans og stjórnar félagsins.
Eftir að hann lagði skóna á hilluna hefur Kroos einbeitt sér að Toni Kroos fótboltaskólanum í Madríd sem þykir einstaklega gæðamikill.
Fjölmiðlar á Spáni hafa fjallað um málið og eru ýmsir orðrómar á sveimi. Einn þeirra hermir að Kroos sé nú þegar í óopinberu starfi fyrir Real Madrid við að reyna að sannfæra samlanda sinn Jürgen Klopp um að taka við þjálfun aðalliðsins.



