Áhuginn á Jadon Sancho, leikmanni Manchester United, er að vaxa. Þetta kemur fram á Sky Sports.
Þar segir að ónefnt félag frá Ítalíu hafi sett sig í samband varðandi möguleikann á því að fá Sancho í sumar. Juventus, Napoli og Roma hafa áður sýnt honum áhuga.
Sancho er að renna út á samningi og United ætlar ekki að nýta ákvæði sem myndi framlengja samninginn. Enski kantmaðurinn er sem stendur á láni hjá Aston Villa.

Borussia Dortmund hefur þá staðfest að félagið hafi sett sig í samband við umboðsmenn kappans. Félög utan Englands mega ræða við hann á þessum tímapunkti.
Sancho er 26 ára enskur kantmaður sem náði ekki að blómstra hjá United eftir að hafa verið keyptur á 73 milljónir punda frá Dortmund.