Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 16:50
Elvar Geir Magnússon
Horfðu í beinni - Kemur í ljós hverjum Ísland mætir í Þjóðadeildinni
Athöfnin hefst í Brussel klukkan 17
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í riðla í Þjóðadeild UEFA karla í dag í Brussel, höfuðborg Belgíu, og hefst drátturinn 17:00 að íslenskum tíma.

Hér verður hægt að horfa á dráttinn á vefsíðu UEFA

Ísland (74) féll úr B-deildinni í fyrra og er í efsta styrkleikaflokki í C-deild ásamt Albaníu (63), Svartfjallalandi (82) og Kasakstan (114).

Innan sviga er staða liðanna á heimslista FIFA. Út frá listanum er Slóvakía sterkasta liðið í öðrum styrkleikaflokki, Belarús í þriðja og Lúxemborg í fjórða.

Annar styrkleikaflokkur
Finnland (75)
Slóvakía (44)
Búlgaría (87)
Armenía (105)

Þriðji styrkleikaflokkur
Belarús (98)
Færeyjar (125)
Kýpur (128)
Eistland (129)

Fjórði styrkleikaflokkur
Lettland (139) eða Gíbraltar (202)
Lúxemborg (102) eða Malta (161)
Moldóva (158)
San Marínó (210)

Í lok mars mætast Lettland og Gíbraltar annars vegar og Lúxemborg og Malta hins vegar í tveggja leikja einvígum um sæti í C-deildinni.
Athugasemdir
banner