Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 10. febrúar 2026 14:27
Elvar Geir Magnússon
Er með Ísland í sínum draumariðli
Færeyska landsliðið.
Færeyska landsliðið.
Mynd: EPA
Færeyski landsliðsmaðurinn Petur Knudsen vonast til að Ísland og Færeyjar dragist saman í riðil í Þjóðadeildinni.

Ísland féll niður í C-deild en dregið verður í riðla á fimmtudaginn. Færeyski miðillinn info fékk Petur til að setja saman sinn draumariðil.

„Við berum okkur oft saman við Ísland, það yrði gaman að mæta þeim og svo er það stutt ferðalag," segir Petur en hann spilar með NSÍ Runavík, liðinu sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar.

Þess má geta að faðir Peturs er Jens Martin Knudsen sem lék sem markvörður með Leiftri tímabilin 1998-2000.

Önnur lið sem Petur setur í sinn draumariðil eru Búlgaría og San Marínó.
Athugasemdir
banner