Heimild: Brann.no
Norska Íslendingaliðið Brann leikur í næstu viku fyrri leik sinn gegn ítalska liðinu Bologna í umspili Evrópudeildarinnar.
Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson gengu í raðir Brann í síðasta glugga og eru báðir komnir með leikheimild.
Íslensku leikmennirnir sem spila undir stjórn Freys Alexanderssonar hjá Brann eru orðnir fjórir en fyrir voru Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson.

„Fyrstu vikurnar hafa verið góðar og ég er að aðlagast virkilega vel," segir Kristall Máni í viðtali við fjölmiðladeild Brann.
Kristall spilar sinn fyrsta leik í treyju Brann á morgun, þegar liðið leikur gegn Odd. Leikurinn fer fram á Spáni þar sem Brann er í æfingabúðum,"
„Það er langt síðan ég spilaði leik síðast. Ég er spenntur fyrir því að spila minn fyrsta leik nánast á þessu ári," segir Kristall en viðtalið má sjá hér að neðan.
Athugasemdir