Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Óttaðist rautt og tók hann af velli eftir 22 mínútur
Manchester United hefur áhuga á Baleba.
Manchester United hefur áhuga á Baleba.
Mynd: EPA
Carlos Baleba, miðjumaður Brighton, var tekinn af velli eftir aðeins 22 mínútur í 1-0 tapinu gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Þessi 22 ára Kamerúni nældi sér í gult spjald eftir aðeins tveggja mínútna leik þegar hann braut á Morgan Rogers.

Hann var svo heppinn að fá ekki annað gult áður en hann var tekinn af velli. Inn fyrir hann kom James Milner sem jafnaði um leið met í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég er ósammála gula spjaldinu sem hann fékk, það var algjörlega röng ákvörðun. Þetta var ekki slæmt brot og átti aldrei að vera gult," sagði Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

„Þessi ákvörðun dómarans hafði mikil áhrif. Við þurftum að passa upp á leikmanninn og töldum að við þyrftum að gera skiptingu."

Manchester United hefur áhuga á Baleba og virðist umræðan hafa haft áhrif á hann á þessu tímabili. Hann hefur ekki náð að sýna sitt besta eins oft.

„Hann er ekki vélmenni, stórt tilboð frá Man Utd gæti haft áhrif á ungan dreng. Það er líka hluti af þróuninni hans," sagði Hurzeler í september.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner