'Ég vann bara með honum í nokkra mánuði en hann er besti leikmaður sem ég hef komist í nánd við á mínum ferli'
Ange Postecoglou, fyrrum stjóri Tottenham, var í viðtali hjá The Overlap þar sem hann ræddi um tíma sinn hjá Tottenham. Postecoglou var látinn fara síðasta vor eftir að hafa unnið Evrópudeildina. Ekkert gekk í deildinni tímabilið 2024/25 og var ákveðið að láta stjórann fara þrátt fyrir titilinn.
Í viðtalinu segir hann að eftir fyrsta tímabilið, sumarið 2024, hafi Tottenham verið að skoða fjögur stór nöfn á markaðnum en einungis eitt þeirra endaði á því að ganga í raðir félagsisns. Viðtalið var tekið í gær, skömmu eftir að arftaki Postecoglou, Thomas Frank, var látinn fara.
Postecoglou vildi fá Antoine Semenyo, Pedro Neto, Marc Guehi og Bryan Mbeumo.
Í viðtalinu segir hann að eftir fyrsta tímabilið, sumarið 2024, hafi Tottenham verið að skoða fjögur stór nöfn á markaðnum en einungis eitt þeirra endaði á því að ganga í raðir félagsisns. Viðtalið var tekið í gær, skömmu eftir að arftaki Postecoglou, Thomas Frank, var látinn fara.
Postecoglou vildi fá Antoine Semenyo, Pedro Neto, Marc Guehi og Bryan Mbeumo.
„Eftir að hafa endað í 5. sæti þá var markmiðið að berjast um titilinn. Til þess þurfti að kaupa leikmenn sem væru tilbúnir í úrvalsdeildina. Við vorum ekki í Meistaradeildinni og vorum ekki með peningana til að kaupa þessa leikmenn. Þess vegna enduðum við með Dom Solanke - sem ég var klárlega mjög hrifinn af - og svo þrjá táninga."
„Ég var að skoða Pedro, Mbeumo og Semenyo, Marc Guehi, því það var leikmaður sem ég horfði á að önnur stór félög myndu taka inn."
Táningarnir sem Postecoglou ræðir um eru Lucas Bergvall, Archie Gray og WIlson Odobert. Þeir kostuðu alls um 80 milljónir punda.
„Þessir þrír eru framúrskarandi ungir leikmenn. Þeir munu verða frábærir leikmenn fyrir Tottenham, en þeir koma þér ekki úr fimmta sæti og upp töfluna. Félagið vildi berjast á öllum stöðum."
Neto fór til Chelsea á 54 milljónir punda sumarið 2024, Man Utd keypti Mbeumo á 71 milljón punda síðasta sumar og Guehi var keyptur til Man City á 20 milljónir punda í síðasta mánuði. City keypti einnig Semenyo í síðasta mánuði, hann kostaði 65 milljónir punda.
„Þetta snýst um það sem er sagt út á við. Mér fannst félagið vera að segja að það væri eitt af stóru strákunum en raunveruleikinn er að ég held þeir séu það ekki hvað varðar reynslu."
„Þegar Arsenal þarf leikmenn eyða þeir 100 milljónum punda Declan Rice. Ég sé Tottenham ekki gera það. Hvenær kom Tottenham á óvart með stórum kaupum? Fólk vanmetur hlutverkið sem Harry (Kane) spilaði síðustu tíu árin. Hann er ótrúlegur. Ég vann bara með honum í nokkra mánuði en hann er besti leikmaður sem ég hef komist í nánd við á mínum ferli. Ég vonaðist alltaf eftir því að hann myndi vera áfram. Ég vissi svo að hann færi og það var ekki eins og við værum að fara á markaðinn og kaupa leikmann eins og Erling Haaland," segir Postecoglou.
Athugasemdir


