Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 10:04
Elvar Geir Magnússon
„Skammarlegt og Forest í tætlum“ - Er að ráða fjórða stjóra tímabilsins
Evangelos Marinakis, eigandi Forest.
Evangelos Marinakis, eigandi Forest.
Mynd: EPA
Sean Dyche var látinn taka pokann sinn.
Sean Dyche var látinn taka pokann sinn.
Mynd: EPA
Nottingham Forest er að fara að ráða sinn fjórða stjóra á einu tímabilinu eftir að Sean Dyche var rekinn.

Nuno Espírito Santo var rekinn þegar 23 dagar voru búnir af tímabilinu, Ange Postecoglou entist í 39 daga og Dyche er nú látinn taka pokann sinn eftir 114 daga í starfinu.

„Þetta tímabil hefur þróast úr krísu í aðra krísu. Vandamál Forest sköpuðust úr þeirra eigin herbúðum eftir að Nuno lenti upp á kant við íþróttastjórann Edu og eigandann Evangelos Marinakis svo staða hans varð ómöguleg," segir Nick Mashiter, íþróttafréttamaður BBC.

„Ráðningin á Postecoglou var illa ígrunduð ákvörðun. Að fara úr skyndisóknum Nuno yfir í hápressu Ástralans. Dyche átti að koma inn með öruggar hendur, koma aftur með það sem hópurinn þekkti frá Nuno. Þá varð þetta falleg heimkoma þar sem Dyche kom í gegnum akademíu félagsins."

Tveir sigrar í síðustu tíu deildarleikjum
Forest vann sjö af fyrstu tólf leikjunum undir stjórn Dyche en aðeins tveir sigrar í síðustu tíu deildarleikjum; auk þess sem liðið féll út gegn Wrexham í bikarnum, gerði það að verkum að Dyche missti fljótt trú og traust stjórnar og stuðningsmanna.

„Þetta tímabil er núna skammarlegt fyrir Forest. Þetta átti ekki að verða svona, liðið er að keppa í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan 1995-96. Forest er í tætlum eftir tvær misheppnaðar ráðningar og ákvarðanar um að reka Nuno."

„Liðið hafnaði í sjöunda sæti á síðasta tímabili og eyddi 180 milljónum punda en fall er raunhæfur möguleiki í tímabili þar sem félagið var með markmið að vinna Evrópudeildina," segir Mashiter.

Flestar tilraunir án marks í áratug
Forest er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti. Liðið er að fara að mæta Fenerbahce í tveggja leikja umspili um að komast í 16-liða úrslitin í Evrópudeildinni. Liðið er úr leik í báðum bikarkeppnunum á Englandi.

Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur Marinakis þegar hafið viðræður við Vitor Pereira, fyrrum stjóra Wolves, um að hann taki við.

Síðasti leikur Dyche með Forest var markalaust jafntefli gegn Wolves í gær. Liðið átti 35 marktilraunir án þess að skora. Áratugur er síðan lið í deildinni átti svo margar tilraunir án þess að búa til mark.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner
banner