Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Tuchel segist vera í draumastarfinu: Hikaði ekki
Tuchel framlengdi við England.
Tuchel framlengdi við England.
Mynd: EPA
Þjóðverjinn Thomas Tuchel framlengdi í dag samningi sínum sem landsliðsþjálfari Englands. Fyrri samningur átti að renna út eftir HM í sumar en hann er nú bundinn yfir EM 2028.

„Það er ekkert leyndarmál að ég hef notið hverrar mínútu í þessu starfi. Ég er mjög ánægður og stoltur af því að halda áfram í þessu hlutverki," sagði Tuchel eftir undirskriftina.

EM 2028 verður haldið á Bretlandseyjum og er Tuchel spenntur fyrir því að stýra enska liðinu á stórmóti á heimavelli.

„Ég hef fengið mikinn stuðning frá sambandinu og stuðningsmönnum. Ég hikaði ekki þegar ég var beðinn um að halda áfram í þessu draumastarfi. EM 2028 verður sérstakt mót og sem þjálfari viltu ekkert frekar en að keppa við þá allra bestu á allra stærsta sviðinu."

Tuchel hafði verið orðaður við Manchester United og stjórn enska sambandsins fagnar því að geta þaggað niður í þeim umræðum.

„Við vitum að leikmenn standa með honum og samheldnin í hópnum er áberandi. Með því að framlengja á þessum tímapunkti forðumst við mögulega truflun sem umræða um samningamál hans gætu haft á HM," segir Mark Bullingham, formaður enska fótboltasambandsins, FA.


Athugasemdir
banner
banner