Eduardo Camavinga, miðjumaður Real Madrid, er eftirsóttur af félögum í úrvalsdeildinni en spænski miðillinn Marca greinir frá því að spænska félagið er tilbúið að selja hann fyrir rétt verð.
Camavinga er 23 ára gamall miðjumaður en hann gekk til liðs við Real Madrid frá Rennes árið 2021. Hann hefur spilað 211 leiki í öllum keppnum og hefur unnið spænsku deildina tvisvar og Meistaradeildina tvisvar.
Samkvæmt heimildum Marca mun Real Madrid ekki hlusta á tilboð undir 50 milljónum punda.
Hann hefur verið orðaður við Liverpool, Man Utd og Arsenal undanfarnar vikur.
Athugasemdir



