Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
banner
   mið 12. október 2022 10:30
Elvar Geir Magnússon
Norðurlöndin búin að sækja um að halda EM 2025
Kvenaboltinn
Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð - með stuðningi Færeyja og Íslands - hafa lagt inn umsókn til UEFA um að halda lokakeppni EM kvenna á Norðurlöndunum 2025.

„Umsóknin hefur verið í undirbúningi í fjögur ár og hafa öll Norðurlöndin unnið ötullega saman að henni," segir á heimasíðu KSÍ

Leikir í keppninni geta ekki farið fram í Færeyjum eða á Íslandi þar sem ekki eru til staðar leikvangar sem uppfylla sett skilyrði. Löndin sýna því umsókninni aðeins stuðning.

Í umsókninni kemur fram að leikið yrði í átta borgum (í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð) og að úrslitaleikurinn yrði leikinn á Vinavöllum (Friends Arena) í Stokkhólmi, sem tekur 50.000 áhorfendur og er stærsti leikvangurinn á Norðurlöndunum. Markmiðið er að selja 800.000 miða alls á leiki keppninnar.

Þetta er fjórða umsóknin sem UEFA hefur borist um að halda mótið. Umsóknir hafa einnig borist frá Frakklandi, Póllandi og Sviss og mun ákvörðun UEFA liggja fyrir þann 25. janúar 2023.
Slapp
banner