Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 10:17
Elvar Geir Magnússon
Eysteinn um nýju KSÍ síðuna: Þetta verður allt í lagi en tekur tíma
Eysteinn Pétur Lárusson.
Eysteinn Pétur Lárusson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að allar þær upplýsingar sem hafi verið á gamla vefnum verði færðar yfir á þann nýja.

Íslenskir fótboltaáhugamenn hafa margir lýst yfir óánægju með þá uppfærslu sem hefur orðið á vef KSÍ en þar er erfitt og jafnvel ómögulegt að finna ýmsar mikilvægar upplýsingar.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV er meðal þeirra sem hafa lýst yfir óánægju sinni með skort á gögnum. Eysteinn svarar honum á Facebook.

„Gögnin úr gamla kerfinu eru öll komin yfir í nýja kerfið, þau eru örugg og það er ekkert sem hefur glatast. Þau eru samt nokkuð slitin og það hefur reynst stærra verkefni en reiknað var með að tengja þau öll í nýja kerfinu og það mun taka tíma," segir Eysteinn.

„Akkúrat núna er mikilvægast að einbeita sér að gera alla virkni klára fyrir sumarmótin, þar er forgangurinn í þessu og sögulegu gögnin verða bara að bíða aðeins. Það er enginn að reyna að gera neinum erfitt fyrir. Við hefðum auðvitað viljað vera komin lengra með þetta, en fólk verður bara að sýna biðlund. Þetta verður allt í lagi, en þessi vinna tekur bara tíma."
Athugasemdir
banner
banner