Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   fös 13. mars 2026 12:17
Elvar Geir Magnússon
Kemur Gordon til varnar eftir að goðsögn gagnrýndi hann
Anthony Gordon, leikmaður Newcastle.
Anthony Gordon, leikmaður Newcastle.
Mynd: EPA
Eddie Howe, stjóri Newcastle, segir að það hafi verið sín ákvörðun að byrja ekki Anthony Gordon gegn Barcelona. Gordon hafði verið veikur og misst af æfingu í aðdraganda leiksins.

Newcastle goðsögnin Alan Shearer var meðal þeirra sem gagnrýndu leikmanninn og sagði að það þyrfti eitthvað stórvægilegt til að hindra sig í að taka þátt í svona stórleik.

Gordon kom inn af bekknum um miðjan seinni hálfleik í 1-1 jafnteflinu gegn Börsungum, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Ég þarf að koma einu á hreint. Hann var algjörlega tilbúinn að spila gegn Barcelona. Ég hef orðið var við umræðuna en það var mín ákvörðun að láta hann ekki byrja því hann hafði verið veikur um morguninn og misst af æfingu," segir Howe.

„Hann var tilbúinn að spila en eftir að hafa ráðfært okkur við sjúkrateymið töldum við hann ekki kláran í að byrja. Það er mikil pressa á honum en það er eitt af því sem fylgir því að vera toppleikmaður. Þegar þú ert farinn að spila fyrir England þá eru gerðar meiri kröfur."

Gordon verður mögulega í byrjunarliðinu hjá Newcastle á morgun, þegar liðið mætir Chelsea á Stamford Bridge.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner